Ópera um Önnu Nicole Smith

Anna Nicole Smith

Anna Nicole Smith

Fyrrum Playboy fyrirsætan, Anna Nicole Smith, sem lést árið 2007 eftir ofneyslu lyfja, 39 ára að aldri, er helsta viðfangsefni óperu sem sett verður upp í Konunglega óperuhúsinu í Lundúnum.

Mun óperan nefnast  Anna Nicole og er það tónskálið Mark-Anthony Turnage sem á heiðurinn af verkinu. Verður hún frumsýnd þann 17. febrúar 2011. Er það hollenska sópransöngkonan Eva-Maria Westbroek sem fer með hlutverk Önnu Nicole.

Anna Nicole var fyrst og fremst fræg fyrir að giftast kornung öldruðum auðkýfingi. Hann lést nokkrum mánuðum eftir brúðkaupið og upp frá því átti hún í hatrömmum deilum við fjölskyldu hans um arf eftir hann.

Smith eignaðist dóttur stuttu fyrir andlát sitt. Skömmu síðar lést tvítugur sonur hennar af hjartsláttartruflunum vegna lyfjaneyslu. Deilur spruttu upp vegna dótturinnar, bæði lögmaður hennar og gamall kærasti sögðust eiga hana.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is