Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 11.3.2010
| 8:20
Ostur úr brjóstamjólk
Matreiðslumeistarinn Daniel Angerer fer nýjar leiðir í matvælaframleiðslu. Hann býr til ost úr brjóstamjólk eiginkonunnar. Hann segist nota þá mjólk sem dóttir hans, Arabella sem er tíu vikna, drekkur ekki, í ostagerðina.
Hann sagðist hafa velt vöngum yfir því hvað væri hægt að gera við dropann dýrmæta enda ómögulegt að hella mjólkinni.
Angerer þótti ferlið við að gefa mjólkina til barna sem ekki eru jafn lánsöm og dóttir hans að fá brjóstamjólk of langt. Hann fór því á netið og kannaði hvað hægt væri að gera og kom upp með ostahugmyndina.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









