Ritchie tekst á við Artúr konung

Guy Ritchie stækka

Guy Ritchie TOBY MELVILLE

Breski leikstjórinn Guy Ritchie mun að öllum líkindum taka að sér að leikstýra kvikmynd um Artúr konung. Síðasta mynd Ritchie, Sherlock Holmes, gekk vel í miðasölu og nú er komið að því að poppa upp kónginn sögufræga, líkt og Ritchie gerði með Holmes. Kvikmyndavefurinn Variety segir frá þessu og að handritshöfundur myndarinnar verði sá sami og skrifaði handritið að Trainspotting, John Hodge. Verður það að hluta til byggt á fornum sögum frá 15. öld af sigrum Artúrs og koma riddarar hringborðsins að sjálfsögðu við sögu sem og hið helga gral.

Áhugamönnum um Artúr konung er sjálfsagt í fersku minni kvikmyndin King Arthur frá árinu 2004, en í henni fór Clive Owen með aðalhlutverkið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin fyrir bæði plötu og lag ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is