Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 11.3.2010
| 6:30
| Uppfært
7:08
Viggo verður Freud
Í maí hefjast tökur á nýjustu mynd David Cronenberg, en sú hefur hlotið nafnið The Talking Cure. Myndin fjallar um Carl Jung ungan og föður sálgreiningarinnar Sigmund Freud og hvernig kastast í kekki milli þeirra þegar Jung fer að þróa sína eigin útgáfu af aðferð Freuds.
Upphaflega stóð til að nýkrýndur óskarsverðlaunahafi, Christoph Waltz, færi með hlutverk Freuds, en þegar hann sagði sig frá verkefninu sökum anna tók Íslandsvinurinn Viggo Mortensen við hlutverkinu. Leikarinn Michael Fassbender verður Jung og Keira Knightley leikur aðal-kvenhlutverkið, hina sálsjúku Sabinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









