Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 12.3.2010
| 5:30
35 ár upp á dag síðan Friðrik Þór frumsýndi mynd
Það var árið 1975, á þessum degi, sem Friðrik Þór Friðriksson hélt fyrst út á vað kvikmyndalistarinnar. Þá var stuttmynd hans, Nomina Sunt Odiosa, sýnd á árshátíð Menntaskólans við Reykjavík.
Nafnið þýðir „Nöfn eru hvimleið“ og sýnir útskrift menntskælinga. Inn í það skeið eru klipptar myndir af gosflöskum í átöppun. Myndin var síðan sýnd á RÚV í júní sama ár.
Þess má geta að myndin fór upp um 15% í vinsældum á kvikmyndavefnum vinsæla IMDB í þessari viku, einhverra hluta vegna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









