Aniston til í að endurnýja kynnin

Jennifer Aniston og Gerard Butler sæt saman á frumsýningu stækka

Jennifer Aniston og Gerard Butler sæt saman á frumsýningu Reuters

Leikkonan Jennifer Aniston væri alveg til í að taka upp samband að nýju með sínum fyrrverandi. Aniston, sem var viðstödd frumsýningu kvikmyndarinnar Bounty Hunter í Lundúnum í gærkvöldi, tók hins vegar ekki fram við hvern hún ætti en hún var eins og allir vita sem fylgjast með fréttum af fræga fólkinu gift Brad Pitt um árabil. Eins átti hún í ástarsambandi við  Vince Vaughn og  John Mayer eftir skilnaðinn við Pitt.

Aniston var spurð  að því hvort hún gæti hugsað sér að taka upp samband að nýju og er hún alveg til í því þar sem fólk getur breyst. „Því þú getur verið þannig stemmdur á þeim tíma sem þú ert með viðkomandi manneskju að þú ert ekki reiðubúinn til þess að stíga stór skref í skuldbindingum. „En fólk breytis og þú lærir að sætta við það góða og það slæma."

Undanfarið hefur verið sterkur orðrómur um að Aniston og leikarinn Gerad Butler, sem einmitt leikur með henni í  Bounty Hunter, eigi í ástarsambandi. En Aniston harðneitar því og segir þau bara góða vini.

„Gerry er indæll, hann er alveg einstaklega góður drengur. En það er eins og mér sé spyrt saman við alla þá sem leika með mér. Þetta er eins og uppskrift - ef þið gerið mynd saman þá hljótið þið að vera í sambandi í raunveruleikanum. Ég veit ekki hverjir koma slíkum orðrómi af stað en mér er að lærast að hunsa hann."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Syrgir enn Heath Ledger

Michelle Williams.
10:24 Michelle Williams hefur enn ekki jafnað sig á dauða barnsföður síns.  Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin fyrir bæði plötu og lag ársins. Meira »

finnur.is