Hasarhetjan Da Vinci

Andlitsmyndin, sem kann að vera af Leonardo da Vinci. stækka

Andlitsmyndin, sem kann að vera af Leonardo da Vinci. AP

Kvikmyndaverið Warner Bros hyggst koma Leonardo Da Vinci á hvíta tjaldið sem hasarhetju. Da Vinci, sem er ef til vill best þekktur fyrir framlag sitt til listasögunnar, var einnig mikil uppfinningamaður og verkfræðingur.

Í handritinu sem Warner Bros hefur fest kaup á, er Da Vinci hluti af leynireglu sem flækist inn í yfirnáttúruleg atburðarás og þarf að kljást við alls kyns djöfla tengda Bíblíunni. Til að flækja hlutina enn frekar verða týndir þjóðflokkar, falin virki og fallnir englar stór hluti af myndinni.

Sagt er að hérna verði um blöndu af National Treasure og Raiders of the Lost Ark að ræða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is