Játningar Owen halda áfram

Frá brúðkaupinu þann 8. nóvember sl. stækka

Frá brúðkaupinu þann 8. nóvember sl. DAVID MOIR

Söngvari Take That, Mark Owen, virðist hafa ákveðið að gera hreint fyrir sínum dyrum. Í gær játaði hann endalaust framhjáhald sitt í viðtali við breska blaðið The Sun og nú játar hann að glíma við áfengisfíkn. Það er að verða spurning um hver játningin verður á morgun.

Í dag segir hann í viðtali við The Sun að hann hafi glímt við áfengisfíkn um árabil. Fyrrum félagi hans í Take That, Robbie Williams, hafi reynst honum stoð og stytta í þessari glímu en Williams hefur einnig glímt við fíknir af ýmsum toga. 

Owen segir að hann hafi aldrei gert sér grein fyrir að hann ætti við vandamál að stríða en hann viti það nú og hafi rætt þetta við félaga sína í hljómsveitinni.

Hann vill samt ekki nota áfengið sem afsökun fyrir ítrekuð framhjáhaldi sínu, meðal annars fimm ára sambandi við Nevu Hanley sem sá um fjárreiður Owens. „Ég hef þurft að glíma við sektina. Kannski var drykkjan leið mín til að takast á við sektina. Ég veit það ekki. Ég vil taka það skýrt fram að ég nota ekki drykkjuna sem afsökun. Drykkja mín er annað vandamál sem ég glími við og það hefur ekki hjálpað til. En ég kenni henni ekki um allt.

Eiginkona Owens, Emma Ferguson, henti honum út úr íbúð þeirra hjóna í Lundúnum í gær eftir að játningar hans um síendurtekið framhjáhald birtist í The Sun. Sást til hennar án giftingahringsins er hún hleypti inn á heimilið til að ræða málin. Þau eiga tvö börn: Elwood, þriggja ára og Willow Rose fjórtán mánaða. Þau gengu í hjónaband í nóvember í fyrra og tók Owen það sérstaklega fram í viðtalinu í gær að hann hefði verið henni trúr frá þeim degi.

Hér er viðtalið við Mark Owen um áfengisvandann

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is