Owen í mynd Sigurjóns
Clive Owen Reuters
Breski stórleikarinn Clive Owen er samkvæmt frétt Daily Mail að fara að leika í hasarmyndinni The Killer Elite, sem fyrirtæki Sigurjóns Sighvatssonar framleiðir. Tökur á myndinni hefjast í Ástralíu í næsta mánuði en aðalleikari myndarinnar verður Jason Statham.
Clive Owen á að baki farsælan feril í kvikmyndum á á leiksviði, hefur verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik í myndinni Closer og hlotið verðlaun á borð við Golden Globe og BAFTA. Meðal annarra mynd sem Owen hefur leikið í eru Sin City, Inside Man og Children of Men, eða Mannabörn, sem Sjónvarpið sýndi nýverið.
Þá er Owen meðal leikara í myndinni Inside Man 2, ásamt Denzel Washington. Fleiri áhugaverðir leikarar koma til með að leika í mynd Sigurjóns, m.a. hinn danski Mads Mikkelsen, sem lék illmennið í James Bond myndinni Casion Royale.
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“










