Phil Spector áfrýjar dómi

Phil Spector stækka

Phil Spector STR

Bandaríski upptökustjórinn Phil Spector, sem var dæmdur í 19 ára fangelsi í fyrra fyrir að hafa myrt leikkonuna Lönu Clarkson, hefur áfrýjað dóminum. Segir Spector að honum hafi verið neitað um sanngjarnt réttarhald.

Áfrýjun Spectors byggir á því að saksóknari í málinu hafi brotið af sér með því að nota vitnisburð fimm kvenna til þess að spilla fyrir málstað Spector en konurnar sögðu upptökustjórann hafa hótað þeim.  Atvikin sem konurnar vísuðu til náðu allt að fjörtíu ár aftur í tímann.

Saksóknarar héldu því fram, að Spector hefði skotið leikkonuna Lana Clarkson til bana í húsi sínu 3. febrúar 2003. Þau hittust fyrr um kvöldið í næturklúbbi í Hollywood þar sem Clarkson vann.

Alan Jackson, saksóknari, sagði að Spector væri byssuóður sérvitringur og hefði oft gerst sekur um ofbeldi gegn konum sem vildu ekki láta að vilja hans. Fimm kunningjakonur Spectors báru fyrir réttinum, að Spector hefði ógnað þeim með byssu. 

Verjendur Spectors héldu því hins vegar fram, að Clarkson hefði framið sjálfsmorð. Þeir bentu einnig á að engar púðurleifar hefðu fundist á höndum og í fötum Spectors.

Spector var á sínum tíma eftirsóttur upptökustjóri sem þróaði svonefndan Wall of Sound hljóm og hafði mikil áhrif á dægurtónlist á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Hann vann m.a. með Bítlunum, Tinu Turner, The Righteous Brothers, The Ronettes og The Ramones.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Funk-bræðingur á Kex Hostel

Einar Scheving.
05:30 Annað kvöld kl. 20.30 verða tónleikar á KEX Hostel þar sem Einar Scheving og félagar koma fram.   Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

finnur.is