Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 13.3.2010
| 5:30
| Uppfært
7:02
BA-verkefni í fatahönnun
Fatahönnuðurnir Agla Stefánsdóttir og Sigrún Halla Unnarsdóttir sýna BA-verkefni sín frá Kolding, School of Design í Danmörku í anddyri Norræna hússins. Sýningin verður opnuð næstkomandi þriðjudag og stendur út mánuðinn.
Auk BA-verkefnisins sýna þær annars vegar endurhönnun á íslenska faldbúningnum eftir Öglu og hins vegar á grænlenskum skinnjakka eftir Sigrúnu. Einnig verða sýndar ljósmyndir og ferilsbækur sem gefa innsýn í hönnunarferlið.
Þær Agla og Sigrún eru báðar af Fljótsdalshéraði og luku BA-námi við Kolding-skólann, Agla 2008 og Sigrún 2009. Þær stunda nú MA-nám við sama skóla.
Sjá nánari umfjöllun um fatahönnuðina austfirsku í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“









