Jón Nordal fékk heiðursverðlaunin
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Íslensku óperunni í kvöld, í beinni útsendingu á Stöð 2. Jón Nordal tónskáld fékk heiðursverðlaunin fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Sigríður Thorlacíus, söngkona hljómsveitarinnar Hjaltalín, var valin rödd ársins og Davíð Þór Jónsson, meðlimur hljómsveitarinar ADHD, var valinn tónlistarflytjandi ársins.
Emiliana Torrini fékk útflutningsverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna, Reykjavík Loftbrú, sem Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri afhenti en Reykjavíkurborg er samstarfsaðili þeirra verðlauna. Sigtryggur Baldursson tók við verðlaununum fyrir hönd Emilíönu.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti Jóni Nordal heiðurverðlaunin. Jón tók sjálfur við verðlaununum og var hylltur lengi og vel af viðstöddum gestum í Íslensku óperunni.
Jón sagðist hafa unnið að tónlist í 70 ár og á þeirri vegferði hefði hann unnið hann með flestum fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Vonaði hann að íslenskt tónlistarlíf myndi blómgast enn meira á næstu árum. Bað hann ungu kynslóðina að minnast genginna tónlistarmanna sem unnið hefðu mikið og gott starf fyrir þjóðina. Katrín sagði Jón hafa unnið stórkostleg afrek á sviði tónlistarinnar og fyllt Íslendinga lífsorku og gleði með verkum sínum.
Alls voru tíu verðlaun veitt í kvöld. Auk þeirra sem hér hafa verið nefnd þá fékk Hjaltalín verðlaun fyrir poppplötu ársins, Terminal. Besta lagið þótti Dreamin' í flutningni Feldberg. Daníel Bjarnason fékk tvenn verðlaun í kvöld, fyrir tónverk ársins, Bow to string, og sem höfundur ársins fyrir tónverkin á plötunni Processions.
Hljómsveitin ADHD fékk verðlaun fyrir bestu djassplötu ársins. Besta platan í flokki sígildrar og samtímatónlistar voru píanókonsertar Haydns í flutningi Eddu Erlendsdóttur og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!










