Lífvörður 50 Cent réðst á ljósmyndara

Rapparinn 50 Cent er í Kaupmannahöfn um helgina. stækka

Rapparinn 50 Cent er í Kaupmannahöfn um helgina. Astrid Stawiarz

Einn lífvarða rapparans 50 Cent hefur verið kærður fyrir að hafa ráðist á danskan ljósmyndara í dag, sem beið ásamt starfsbræðrum sínum fyrir utan hótel í Kaupmannahöfn þar sem 50 Cent og fylgdarlið dvelja á meðan tónleikahaldi stjörnunnar stendur í borginni um helgina.

Samkvæmt frásögn Berlingske Tidende beið ljósmyndarinn þolinmóður fyrir utan hótelið þegar lífvörðurinn birtist og reyndi að hindra hann að störfum.

Haft er eftir ljósmyndaranum að lífvörðurinn hafi beðið hann og fleiri fjölmiðlamenn að færa sig og síðan hafi hann skyndilega ráðist að þeim. Fékk ljósmyndarinn högg í andlitið og marinn á eftir. Lífvörðurinn lét þetta víst ekki duga heldur rauk inn í bíl ljósmyndarans og tók þaðan myndavél og annan tengdan búnað.

Ljósmyndarinn lagði fram kæru til lögreglunnar sem tók að sér rannsókn málsins.  Tónleikar 50 Cent fara eftir sem áður fram í Bröndby höllinni í kvöld.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is