Lög unga fólksins
Píanóleikarinn Kristján Karl Bragason heldur einleikstónleika í Salnum á laugardag kl. 17:00, en tónleikarnir eru í tónleikaröðinni Lög unga fólksins í Tíbrá.
Á efnisskránni eru verk eftir Ludwig van Beethoven, Frédéric Chopin, Sergei Prokofiev og Jón Leifs. Hann segist hafa sótt um það að fá að leika á tónleikum í Salnum, enda eftirsóknarvert í hans augum. „Ég hef aldrei spilað í Salnum og má því kannski kalla það debuttónleika.“
Kristján Karl hóf píanónám í Tónlistarskólanum á Dalvík, en hefur síðan lært á Akureyri, í Reykjavík og í Stuttgart. Hann var síðan við nám í París í fimm ár og lærði þá meðal annars hjá Eddu Erlendsdóttur en árin 2007 til 2009 var hann nemandi Pascal Amoyel við CRR de Rueil-Malmaison í París.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“









