Mark Owen farinn í meðferð
Take That söngvarinn Mark Owen hefur nú farið í meðferð til að takast á við áfengisvanda sinn. Óhætt er að segja að undanfarin vika hafi verið vika uppljóstrana hjá kappanum.
Hann byrjaði á að segjast hafa haldið svo oft fram hjá konunni sinni að hann myndi ekki hversu oft en líklega væri um tíu konur að ræða. Síðar sagðist hann eiga við áfengisvandamál að stríða og nú er Mark Owen sem sagt farinn í meðferð.
Mark giftist konu sinni Emmu í nóvember á síðasta ári en þau eiga saman tvö börn, Elwood þriggja ára og Willow Rose 14 mánaða. Emma er sögð hafa tekið niður giftingarhringinn eftir að Mark sagði frá framhjáhaldi sínu sem stóð yfir nær allan þann tíma sem parið hefur verið í sambandi. Mark hafði reynt að klóra í bakkann með því að segjast ekkert hafa haldið framhjá Emmu frá því þau giftu sig í fyrra.
Félagar Mark í Take That hafa gefið honum frí frá upptökum nýrrar plötu á meðan hann tekst á við sín mál.
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









