MR í úrslit Gettu betur

Gettu betur keppnin fer fram í Útvarpshúsinu við Efstaleiti. stækka

Gettu betur keppnin fer fram í Útvarpshúsinu við Efstaleiti. mbl.is/Ómar

Menntaskólinn í Reykjavík hafði sigur á Menntaskólanum á Egilsstöðum í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, í kvöld. MR fékk 34 stig en ME 22 stig. Þetta var fyrri viðureignin í undanúrslitum keppninnar á RÚV og MR því komið í úrslit - ekki í fyrsta sinn.

Síðari viðureignin í undanúrslitunum fer fram 20. mars á milli Versló og Fjölbrautaskólans á Suðurlandi.  Annar hvor skólinn mætir svo MR í úrslitum Gettu betur í Sjónvarpinu 27. mars nk.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is