Mugison í Ameríku

Mugison kynnir nú land og þjóð fyrir Bandaríkjamönnum. stækka

Mugison kynnir nú land og þjóð fyrir Bandaríkjamönnum. hag / Haraldur Guðjónsson

Vestfirski tónlistarmaðurinn Mugison er staddur í Norður-Ameríku þar sem hann mun gefa íbúum Boston og Toronto forsmekk af Íslandi á kynningu sem ber nafnið Taste of Iceland. Frá þessu er greint á vef Bæjarins besta á Ísafirði.

Hátíðin Taste of Iceland er liður í samkomulaginu Iceland Naturally, sem íslensk stjórnvöld og nokkur íslensk fyrirtæki gerðu fyrst með sér í tengslum við landafundahátíðina vestanhafs árið 2000. Kynningin felur einnig í sér kynningu íslenskra eðalkokka á íslenskum matvælum á fjölda veitingastaða, sérstakt ferðamálaátök, kvikmyndahátíðir, og kynningar á íslenskri vöru og þjónustu. Kynning hófst í Boston á fimmtudag og stendur til 17. mars en þá færir hún sig til Toronto þar sem Ísland verður kynnt frá 17. mars til 20. mars nk.

Bæjarins besta vitnar til heimasíðu Mugison en þar kemur fram að tónlistarmaðurinn er farinn að huga að nýrri plötu þar sem hann mun nota hljóðfærið sem hann og Páll Einarsson hönnuðu. Mugison hefur einnig betrumbætt vef sinn en þar er komið nýtt pöntunarkerfi sem auðveldar fólki að versla tónlist hans, segir á bb.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is