Vilja bolluaið burt úr borgarnafninu

Ráðhústurninn í Árósum.

Ráðhústurninn í Árósum. mbl.is/GSH

Meirihluti borgarstjórnar Árósa vilt breyta stafsetningunni á nafni borgarinnar. Borgin heitir Århus á dönsku en borgarstjórinn vill að nafnið verði skrifað Aarhus og vísar til þess að danska bolluaið sé ekki heppilegt í alþjóðlegu samhengi. 

Fram kemur á fréttavef Århus Stiftstidende, að Nicolai Wammen, borgarstjóri, sem er fulltrúi Jafnaðarmannaflokksins, telji að bolluaið standi borginni fyrir þrifum þegar verið sé að kynna hana á alþjóðlegum vettvangi. Því sé betra að taka upp gamla ritháttinn á ný. Fulltrúar Sósíalíska þjóðarflokksins eru þessu sammála, segir blaðið, og þar með eru 19 borgarfulltrúar af 31 með breytingunni.

„Århus á langa og merka sögu að baki og nafnið Aarhus mun bæði vísa til fortíðarinnar og inn í framtíðina," hefur blaðið eftir Thomas Medom, formanni borgarstjórnarflokks Sósíalíska þjóðarflokksins við blaðið.

Talsverður kostnaður er því fylgjandi að breyta borgarnafninu en Medom segist vera viss um að sá kostnaður skili auknu umtali um borgina og fleiri ferðamönnum. 

Árósar breyttu um  nafn þegar nýjar stafsetningarreglur tóku gildi í Danmörku árið 1948.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is