Veröld/Fólk
| mbl
| 15.3.2010
| 17:41
Ferðaskrifstofa fyrir bangsa
Sæktu
Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Fyrir þá sem vantar hugmynd til að gleðja uppáhaldsbangsann sinn er ekki úr vegi að líta til Tékklands. Þar hefur hugvitssamur frumkvöðull nú stofnað ferðaskrifstofu sem býður upp á tveggja vikna skemmtiferðir fyrir bangsa til höfuðborgarinnar Prag. Eigendur senda bangsana til borgarinnar þar sem dekrað er við þá með skoðunarferðum og nuddi svo eitthvað sé nefnt.
Herlegheitin kosta um 300 evrur, eða rétt um fimmtíuþúsund kall. Bangsi er svo sendur heim alsæll með myndir og gjafir handa eigandanum.
Hugmynd frumkvöðulsins féll í það góðan jarðveg hjá tékkneskum fjárfestum að tveir þeirra stærstu settu 24.000 evrur, um fjórar milljónir króna í bangsaferðaskrifstofuna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









