Minnsti maður heims látinn

He Pingping, sem skráður var minnsti maður heims í Heimsmetabók Guinness, er látinn, 21 árs að aldri. He, sem var kínverskur, var 74,61 sentimetrar að hæð

He var í Róm til að taka þátt í sjónvarpsþætti þegar hann fékk brjóstverki. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést um helgina.

Craig Glenday, aðalritstjóri Heimsmetabókar Guinness, rifjaði upp þegar hann mældi He í Innri-Mongólíu árið 2008. „Þótt hann væri smávaxinn hafði hann mikil áhrif um allan heim," sagði Glenday. „Um leið og ég sá hann vissi ég að hann var sérstakur. Hann var með ósvífið bros og prakkaraeðli og fólk komst ekki hjá því að líka vel við hann. " 

Heimsmetabókin mun innan skamms úrskurða hver er minnstur í heimi. Nepalbúinn  Thapa Magar, 18 ára, lýsti því yfir í febrúar að hann ætti tilkall til þessa titils en hann er sagður vera 51 sentimetri á lengd.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is