Vill ekki tala um dóttur sína

Jude Law.

Jude Law. AP

Breska leikaranum Jude Law virtist bregða þegar hann var í sjónvarpsviðtali spurður út í sex mánaða dóttur sína Sophie sem hann átti eftir  stutt samband með bandaríska samkvæmisljóninu Samönthu Burke.

Spyrillinn fór kannski ekki mjög fínt í hlutina þegar hann sagði: „Þú barnaðir konu í desember árið 2008 samkvæmt The National Enquirer.“

Jude er sagður hafa brosað augsýnilega taugaóstyrkur og svarað: „Allt í lagi , allt í lagi. Þetta er gott hjá þér. Það er ekki gott að fara að ræða mál sem slúðurpressan veltir sér upp í svona viðtali. Kannski ég ætti bara að fara.“

Þó Jude, sem á einnig þrjú börn með fyrrum konu sinni Sadie Frost, hafi virst tregur til að ræða nýjasta barn sitt þá hefur þegar verið greint frá því að hann hafi komist að samkomulagi við móður þess. Felur það meðal annars í sér að hann heimsæki Sophie tvisvar ári og borgi móður hennar 5.000 pund á mánuði eða tæpa milljón gegn því að hún ræði ekki um sig við fjölmiðla.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is