Björk og Gondry feta nýja slóð

Gondry og Björk ku nú vera að smíða verkefni sem er miklu stærra í sniðum ... stækka

Gondry og Björk ku nú vera að smíða verkefni sem er miklu stærra í sniðum en hefðbundið tónlistarmyndskeið.

Söngkonan Björk og franski leikstjórinn Michel Gondry vinna nú að verkefni sem er mun umfangsmeira en hefðbundið tónlistarmyndskeið. Gondry hefur lýst verkefninu sem „mjög metnaðarfullu, eins konar vísindasöngleikur...  kannski meira fyrir söfn. Eins og 40 mínútna IMAX í þrívídd.“

Fréttavefurinn Hitfix greinir frá þessu nýjasta verkefni þeirra Bjarkar og Gondry.  Þar kemur fram að þau hafi áður unnið saman við gerð tónlistarmyndbanda á borð við „Human Behaviour“ og „Declare Independence“.

Einnig kemur fram í fréttinni að Björk sé sem endarnær með ýmis járn í eldinum. Þar á meðal er hljómsveitarverk. Ekki er ljóst hvort það tengist verkefninu sem þau Gondry eru nú með í smíðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin fyrir bæði plötu og lag ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is