Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 16.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:18
Fyrirlestur um kínverska tónlist
Arnþór Helgason
Arnþór Helgason fjallar um kínverska tónlist í fyrirlestri á vegum Konfúsíusarstofnunar og Kínversk-íslenska menningarfélagsins næstkomandi fimmtudag kl. 12.
Fyrirlesturinn verður í Gimli, stofu 102. Í fyrirlestrinum verður stiklað á stóru um sögu kínverskrar tónlistar frá því um 7.000 árum f. Kr. fram yfir miðja síðustu öld.
Fjallað verður um nokkrar tegundir tónlistar, samskipti Kínverja við aðrar þjóðir og áhrif á tónlist þeirra og leikin tóndæmi sem sýna fjölbreytileika tónlistarinnar og eins að Kínverjar voru m.a. langt á undan öðrum þjóðum í vísindalegum athugunum sínum í tónfræði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









