Gríðarlegur uppgangur í íslenskri hönnun
helgisnaer@mbl.is
VIÐAMIKIL hönnunarhátíð, HönnunarMars, hefst á fimmtudaginn. Boðið verður upp á mikinn fjölda viðburða, sýningar og fyrirlestra og er dagskráin ætluð hönnuðum og fyrirtækjum sem og áhugafólki um hönnun; almenningi og erlendum gestum. Stjórnandi hátíðarinnar er Greipur Gíslason en Hönnunarmiðstöð Íslands réð hann til að stýra verkefninu.
„Það er byrjað að skipuleggja HönnunarMars um leið og þeim síðasta sleppir,“ segir Greipur um undirbúningsvinnuna. „HönnunarMars er fjögurra daga hátíð íslenskrar hönnunar, uppskeru- og vorhátíð, þar sem Hönnunarmiðstöð Íslands, regnhlífarbatterí fyrir alla íslenska hönnun, skapar grundvöll fyrir hönnuði að kynna sig fyrir almenningi, fjölmiðlum, ráðamönnum og kannski ekki síst erlendum fjölmiðlum og kaupendum sem við flytjum inn til landsins ásamt Norræna húsinu og hönnunarsjóði Auroru,“ segir Greipur. Fjöldi erlendra blaðamanna sé væntanlegur til landsins að fylgjast með viðburðinum og einnig kaupendur frá Norðurlöndum sem hitta munu íslenska hönnuði. Því sé þetta bæði kaupstefna og borgarhátíð.
Miða við HönnunarMars
Greipur segist hafa orðið var við fyrir þennan HönnunarMars að það sé orðið hönnuðum kappsmál að koma verkum sínum á hátíðina. HönnunarMars var haldinn fyrsta sinni í fyrra og stefnir í að hann verði árviss viðburður.– Er allt í blóma í íslenskri hönnun?
„Já, það er sko allt í blóma. Það er gríðarlegur uppgangur og gríðarleg vakning meðal almennings og svo er mikill meðbyr, við fundum það strax í fyrra þegar við gerðum þetta fyrst. Þá voru nú bara örfáir mánuðir liðnir frá hruninu,“ segir Greipur. „Það er alla vega nóg af dóti til að sýna.“
– Haldið þið að almenningur verði sífellt áhugasamari um hönnun?
„Það held ég að sé engin spurning. Og það skýrist af mörgu. Ekki síst er mikil áhersla á hið íslenska í þjóðfélaginu, svona „íslenskt er betra“, og það hjálpar. Út frá viðskiptasjónarmiði eru fleiri farnir að gera sér mat úr íslenskri hönnun, verslanir með íslenska hönnun farnar að spretta upp á ólíklegustu stöðum,“ svarar Greipur. Íslendingar séu farnir að veita íslenskri hönnun meiri athygli og það megi m.a. þakka sölu á vörum sem nýtist öllum. Greipur nefnir einnig að auðveldara sé orðið að sækja hönnunarnám innanlands, m.a. nám í arkitektúr í Listaháskóla Íslands.
Risastór tískuhátíð, RFF
„Á hátíðinni í ár er líka mikil fatahönnunarslagsíða sem við erum mjög ánægð með. Það hlýst m.a. af því að það er risastór viðburður, Reykjavík Fashion Festival, inni í dagskránni okkar,“ segir Greipur og er orðinn óðamála enda mikið að gera og margt í boði. RFF sé án efa einn stærsti viðburðurinn innan HönnunarMars en hann fer fram 19. mars í Ó. Johnsson og Kaaber-húsinu í Sætúni 16.HönnunarMars hefur þegar verið þjófstartað, með sýningu á hönnun fyrir börn í Hafnarborg, og annað kvöld mun Félag íslenskra teiknara, FÍT, veita verðlaun fyrir grafíska hönnun í Iðu-húsinu við Lækjargötu. Aðgangur er ókeypis að öllum viðburðum og öllum heimill sem er gott í kreppunni.
Einn áhrifamesti grafíski hönnuður tíunda áratugarins
„Margar fagstéttir hönnuða eru með samsýningar á mörgum stöðum í bænum; leirkerasmiðir eru með fallega samsýningu niðri í Fógetastofu í Aðalstræti, gullsmiðir eru með glæsilega samsýningu á Skólavörðustíg og svo eru arkitektafélögin þrjú, þ.e. Arkitektafélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta og Félag húsgagna- og innanhússarkitekta, með sameiginlega miðstöð við Höfðatorg,“ nefnir Greipur sem dæmi um áhugaverðar sýningar. Af öðrum einstökum viðburðum má einnig nefna sýninguna Reykjavík Rewind en fyrir hana fékk hópur nemenda við Listaháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík frumkvöðla á sviði íslenskrar hönnunar til að velja hluti sem tilheyra íslenskri hönnunarsögu frá 6. og 7. áratug síðustu aldar. Á vefsíðu Hönnunarmiðstöðvar má finna dagskrána í heild sinni, honnunarmidstod.is.Ýmsir fyrirlestrar verða haldnir á HönnunarMarsi og erindi. Meðal fyrirlesara verður Bandaríkjamaðurinn David Carson, einn áhrifamesti grafíski hönnuður tíunda áratugar síðustu aldar, þekktur af frumlegri hönnun sinni fyrir tímarit og tilraunir með notkun á leturgerðum. Það er af nógu að taka á HönnunarMarsi.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









