Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 16.3.2010
| 6:30
| Uppfært
7:15
Lísa að hætti Burtons heillar
Lísa í Undralandi, eða Undirlandi eins og það heitir víst í myndinni, heldur toppsætinu aðra helgina í röð en hasarmyndin Green Zone kemur í kjölfarið með garpinn Matt Damon innanborðs. 17 milljónir króna hafa fengist með miðasölu á Lísu og ætti það að þykja harla gott.
The Good Heart, nýjasta kvikmynd Dags Kára Péturssonar, er í áttunda sæti og nema tekjur af henni frá fyrstu sýningum um 1,7 milljónum króna.
Það kemur fátt á óvart á Bíólistanum, Loftkastalinn sem hrundi heldur þriðja sætinu og mun sjálfsagt halda jafnri og góðri aðsókn næstu helgar.
Avatar er í sjötta sæti en sá smellur hefur rakað krónunum inn í peningakassa bíóhúsanna, tæp 141 milljón króna, takk fyrir. Þó hefur kvikmyndin verið sýnd í 13 vikur.
Óskarsverðlaunamyndin The Blind Side var frumsýnd fyrir helgi en hún er í fjórða sæti. Afbragðsræman Precious er í 9. sæti, dettur niður um fjögur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









