Öðru kvöldi Músíktilrauna lokið

Hydrophobic Starfish var besta hljómsveit kvöldsins að mati dómnefndar. stækka

Hydrophobic Starfish var besta hljómsveit kvöldsins að mati dómnefndar. Ernir Eyjólfsson

Hljómsveitin Hydrophobic Starfish var valin besta hljómsveit kvöldsins af dómnefnd á öðru úrslitakvöldi Músíktilrauna sem fram fór í Íslensku óperunni í kvöld. Áhorfendur völdu hinsvegar hljómsveitina Snjólugt og munu bæði böndin því spila á úrslitakvöldinu í næstu viku.

Fyrirkomulag Músíktilrauna er þannig að fjögur úrslitakvöld eru haldin og eftir hvert þeirra komast 2 hljómsveitir áfram, önnur sem valin er af dómnefnd en hin af áhorfendum í sal. 11 bönd spiluðu í kvöld og var nokkuð þétt setið í Íslensku óperunni. Þess má geta að yngsti keppandi kvöldsins var aðeins 12 ára gamall, hann heitir Arnar Geir Gíslason og spilaði á bassa með hljómsveitinni Dólgarnir frá Vestmannaeyjum.

Rokkbræðingssveitin Hydrophobic Starfish er skipuð einvalaliði úr Reykjavík og Keflavík, þeim Marínu Ósk Þórólfsdóttir söngkonu, Arnari Pétri Stefánssyni á gítar, Magnúsi Benedikt Sigurðssyni hljómborðsleikara, Ingvari Agli Vignissyni á bassa og Höskuldi Eiríkssyni trommuleikara. Þau eru á aldrinum 20 til 23 ára.

Hljómsveitin Snjólugt er af Álftanesi og úr Mosfellsbæ skipuð fjórum 19 ára síðpoppurum, þeim Finn Sigurjóni Sveinbjarnasyni píanóleikara og söngvara, Bjarna Degi Karlssyni trommuleikara, Baldvin Ingvari Tryggvasyni gítarleikara og Gísla Má Guðjónssyni bassaleikara.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is