Veröld/Fólk
| mbl
| 16.3.2010
| 16:42
Pöndur settar í fitun
Tíu risapöndur í borginni Shangai í Kína hafa nú verið settar í fitun fyrir heimsýninguna sem fyrirhugað er að halda í borginni í maí. Mataræðið er vandlega samansett af bambus og grænmeti og kílóin eru byrjuð að hlaðast upp á dýrin.
Um er að ræða sex kvendýr og fjögur karldýr og hefur hver panda bætt á sig um sex til sjö kílóum. Sú þyngsta þeirra vegur nú um 62 kíló.
Risapanda sem er í útrýmingarhættu finnst aðeins í Kína en náð var sérstaklega í dýrin af verndarsvæði í Sichuan héraði í janúar, fyrir sýninguna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









