Sheen neitar sekt

Charlie Sheen og Brooke Mueller stækka

Charlie Sheen og Brooke Mueller

Bandaríski leikarinn Charlie Sheen neitar að hafa ráðist á eiginkonu sína, Brooke Mueller, á jóladag líkt og hún hefur haldið fram. Að hennar sögn sneri hann hana niður og hélt hnífi að hálsi hennar. Ástæða árásarinnar er talin vera hótun Mueller um að skilja við eiginmanninn.

Verjandi Sheen, Stan Rosenfield, sagði fyrir dómi í Aspen að leikarinn fagni því að geta hreinsað nafn sitt við réttarhöldin. Sheen var ekki sjálfur viðstaddur í réttarsalnum í gær en næsta vitnaleiðsla í málinu er í apríl.

Bæði Sheen og Mueller hafa verið í meðferð að undanförnu, hann við áfengis- og kókaínfíkn og hún vegna sömu fíkna. Saman eiga þau eins árs gamla tvíbura sem voru með þeim í skíðafríi í Aspen um jólin þegar Sheen á að hafa ráðist á Mueller. Tvíburarnir hafa verið í umsjón fóstru á meðan foreldrarnir eru að vinna í sínum vandamálum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is