Tjáir sig um ástarsambandið við Edwards
Edwards sagði í janúar að hann hefði veitt stúlkunni fjárhagslegan stuðning og myndi halda því áfram.
Í viðtalinu ræður Hunter um dóttur þeirra, eiginkonu Edwards, Elizabeth Edwards, og það fé sem hún hafi fengið frá vinum og stuðningsmönnum framboðs Edwards.
Edwards og Hunter kynntust þegar hann bauð sig fram sem forsetaefni Demókrataflokksins árið 2008.
Edwards hefur verið kvæntur í 30 ár. Elizabeth, kona hans, barðist við brjóstakrabbamein á þessum tíma. Edwards viðurkenndi á endanum að hafa haldið fram hjá konu sinni og hætti við framboðið af þeim sökum. Hún hefur farið fram á skilnað við eiginmann sinn.
Hunter segir í viðtalinu að hún hafi ekki viljað tjá sig opinberlega um sambandið fyrr en hann myndi gangast við dóttur sinni opinberlega.
Rannsóknarkviðdómur rannsakar nú hvort Edwards hafi brotið kosningalög með því að reyna að halda ástarævintýrinu leyndu. Hunter segir við GQ að hún hafi borið vitni fyrir dómnum.
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









