Wolf Hall skáldsaga ársins

Hilary Mantel stækka

Hilary Mantel Reuters

Samtök bandarískra bókmenntagagnrýnenda, The National Book Critics Circle, kynntu fyrir stuttu árleg bókmenntaverðlaun sín og kom fáum á óvart að Wolf Hall eftir enska rithöfundinn Hilary Mantel var valin skáldsaga ársins og lofuð fyrir frumleika og áræði, en bókin segir frá Thomas Cromwell sem hófst úr allsleysi í að verða annar valdamesti maður Englands á sextándu öld.

Ljóðabók ársins var valin Versed eftir Rae Armantrout, The Age of Wonder: How the Romantic Generation Discovered the Beauty and Terror of Science eftir Richard Holmes var valið fræðirit ársins, ritgerðasafn Eula Biss, No Man's Land fékk verðlaun fyrir gagnrýnirit ársins, ævisaga ársins var valin bók Blake Bailey um rithöfundinn John Cheever og sjálfsævisögu ársins átti Diana Athill, sem þekktust er fyrir áralangt starf að bókaútgáfu, en bók hennar ber heitið Somewhere Towards the End.

Þess má geta að Wolf Hall hlaut Booker-verðlaunin bresku á síðasta ári.

Wolf Hall segir frá umbrotatímanum á öðrum áratug sextándu aldar þegar þráhyggja Hinriks áttunda eftir ríkisarfa komst á það stig að hann ákvað að skilja við Katrínu af Aragon og ganga að eina Önnu Boleyn, því þó honum og Katrínu hafi orðið barns auðið þá var það stúlka og hann taldi að kona gæti ekki stýrt Englandi. Höfuðpersóna bókarinnar er Thomas Cromwell, sem hófst til mikilla metorða í valdatíð Hinriks en var síðan hálshöggvinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is