9.000 breytingar

James Joyce stækka

James Joyce AP

Morgunblaðið efi@mbl.is
Eftir 30 ára vinnu og 9.000 breytingar á texta Finnegans Wake, síðustu skáldsögu James Joyce, hafa fræðimennirnir Danis Rose og John O'Hanlon sleppt höndum af verkinu fyrir útgáfu. Þegar bókin kom út árið 1939 vissu gagnrýnendur, hvað þá almennir lesendur varla hvað þeir áttu að segja, svo erfiður, flókinn og illskiljanlegur er texti verksins.

Í The Guardian er haft eftir Joyce að hann hafi skrifað bókina til að halda gagnrýnendum uppteknum næstu 300 árin, og að eina krafan sem hann gerði til lesenda sinna væri að þeir ættu að helga líf sitt lestri bóka hans.

Rose og O'Hanlon hafa unnið að textagreiningu sinni í þrjá áratugi og segja að lesendur fái nú í hendur auðlæsilegri og skiljanlegri útgáfu sögunnar. Þau hafa rýnt í þúsundir blaðsíðna af uppköstum, hugmyndum og athugasemdum sem Joyce skildi eftir sig, að auki 20.000 síður í handriti og 60 minnisbækur. „Til að ná í textann urðum við að fylgja slóð Joyce aftur á bak og það er erfiðara að fara aftur á bak en áfram,“ er haft eftir Rose.

Hann segir að með þessari nýju útgáfu sé „tími Finnegans Wake kominn. Við erum loksins að verða samtímamenn Joyce. Það hefur tekið þessi 90 ár síðan Ulysses kom út að geta byrjað að lesa Finnegans Wake. Nú getur Ulysses stigið til hliðar. Sú bók tilheyrði 20. öldinni, Finnegans Wake tilheyrir þeirri 21.“

Finnegans Wake eftir James Joyce

Finnegans Wake eftir James Joyce AP

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is