Depp og Jolie saman í Feneyjum

Brad Pitt og Angelina Jolie yfirgefa veitingastað í Feneyjum ásamt börnum sínum stækka

Brad Pitt og Angelina Jolie yfirgefa veitingastað í Feneyjum ásamt börnum sínum Reuters

Leikararnir Johnny Depp og Angelina Jolie eru við tökur í Feneyjum en þau leika saman í kvikmyndinni The Tourist, eða Ferðamaðurinn, sem þýsk austurríski leiksstjórinn Florian Henckel Von Donnersmarck leikstýrir. Hann gerði meðal annars kvikmyndina Das Leben der Anderen sem vann til fjölda verðlauna á árunum 2006 og 2007.

Sást til Depp og Jolie fyrir framan Danieli Hotel, eitt flottasta hótel Feneyja en það er rétt við Markúsartorgið. Jolie er þó ekki ein á ferð með Depp því Brad Pitt og börnin eru einnig með í för ef marka má myndir sem ljósmyndarar hafa náð af parinu í Feneyjum.

The Tourist er spennumynd þar sem saga bandarísks ferðamanns er sögð en Depp fer með það hlutverk. Hann kemst í hættu þegar liðsmaður Interpol, sem  Angelina Jolie leikur, notar ferðamanninn sem gildru í eltingaleik við glæpamann. 

Byggir myndin á franskri kvikmynd frá árinu 2004, Anthony Zimmer, þar sem Sophie Marceau og Yvan Attal fóru með aðalhlutverkið.

STRINGER/ITALY

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is