Kevin Costner að eignast sitt sjöunda barn

Kevin Costner stækka

Kevin Costner Reuters

Bandaríski leikarinn Kevin Costner er að verða faðir í sjöunda skiptið. Eiga hann og eiginkona hans Christine Baumgartner von á barni í júní en það er þriðja barn þeirra saman. Þau keyptu sér nýverið hús í Berlín en eiginkona hans er þýsk.

Costner greinir frá þessu í viðtali við þýska blaðið Bunte. Baumgartner, sem er hönnuður og fyrirsæta, og Costner eiga fyrir tvo syni:  Cayden Wyatt sem er tveggja ára og  Hayes Logan sem er eins árs.

Costner átti fyrir þrjú börn með fyrrum eiginkonu sinni, Cindy Silva, en þau skildu eftir sextán ára hjónaband árið 1994. Árið 1996 eignaðist hann soninn Liam með  Bridget Rooney.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is