Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 17.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:36
Mót fjögurra karlakóra á Akureyri
Karlakór Akureyrar-Geysir stendur fyrir tónleikum fjögurra karlakóra á Akureyri næstkomandi laugardag með yfirskriftinni Hæ. Tröllum! Tónleikarnir verða í Glerárkirkju og hefjast klukkan 16:00.
Þátttakendur verða auk gestgjafanna Karlakór Bólstaðarhlíðar, Karlakór Eyjafjarðar og Karlakórinn Hreimur. Karlakór Bólstaðarhlíðar stjórnar Sveinn Árnason, Karlakór Eyjafjarðar stýrir Petra Björk Pálsdóttir, Karlakórnum Hreimi stjórnar Aladár Rácz og Karlakór Akureyrar-Geysi stjórnar Valmar Väljaots. Undirleikari verður Aladár Rácz.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









