Sektaður fyrir að beita óvenjulegu vopni

Héraðsdómur í Aberdeen í Skotlandi sektaði mann nokkurn um 600 pund, jafnvirði 115 þúsund króna, fyrir að ráðast á lögreglukonu og beita kynfærum sínum sem vopni.

Breska ríkisútvarpið BBC segir að maðurinn, sem heitir Marium Varinauskas og er 28 ára, hafi reynt að slá lögreglukonuna í höfuðið með getnaðarlim sínum þegar hún var kölluð í íbúð hans.

Varinauskas viðurkenndi brot sitt en sagði fyrir réttinum, að hann hefði verið ofurölvi og myndi ekkert eftir atvikinu. Það var unnusta mannsins sem kallaði á lögreglu í nóvember vegna þess að Varinauskas var með drykkjulæti á heimili þeirra.

Fram kemur á vef BBC, að þegar lögreglan kom í íbúðina sat Varinauskas á sófanum í nærbuxunum einum. „Sakborningurinn reis á fætur og stóð yfir lögregluþjóninum með liminn afhjúpaðan og otaði honum að andliti hennar þannig að hún neyddist til að víkja sér undan," segir í lögregluskýrslunni.  

Fullyrt er að Varinauskas hafi dregið mjög úr áfengisneyslu sinni eftir þetta atvik.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is