Vinnan skapaði vandræði

Sam Mendes og Kate Winslet á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra. stækka

Sam Mendes og Kate Winslet á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra. reuters

Greint var frá því í fyrradag að óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet væri skilin við eiginmann sinn til sex ára, Sam Mendes kvikmyndaleikstjóra.

Þau fluttu í sundur um tíma á síðasta ári og í fyrradag tilkynntu lögfræðingar þeirra að þau væru skilin að lögum.

Vandræðin byrjuðu eftir að þau höfðu unnið saman að myndinni Revolutionary Road árið 2008 og fluttu þau í sundur eftir það, en tóku aftur saman eftir að þau áttuðu sig á því að þau væru óhamingjusöm sitt í hvoru lagi.

„Að vinna og búa saman var mjög erfitt og fór með sambandið. Þau hafa mjög ólíka vinnutækni, Sam vildi ekki hugsa um vinnuna eftir langan dag en Kate vildi skoða hvert smáatriði í leik sínum. Það var of mikið,“ sagði heimildarmaður Daily Mirror.

Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Kate Winslet.

Kate Winslet. reuters

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Funk-bræðingur á Kex Hostel

Einar Scheving.
05:30 Annað kvöld kl. 20.30 verða tónleikar á KEX Hostel þar sem Einar Scheving og félagar koma fram.   Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

finnur.is