Abramóvítsj fær miskabætur

Roman Abramóvítsj. stækka

Roman Abramóvítsj. Getty images

Rússneski kaupsýslumaðurinn Roman Abramóvítsj hefur gert samkomulag við ítalska blaðið La Repubblica sem felur í sér, að blaðið greiðir honum umtalsverðar miskabætur og tekur aftur fullyrðingar um að auðkýfingurinn hafi tapað heilli snekkju í póker.

Blaðið birti frétt þessa efnis í maí í fyrra undir fyrirsögninni: Svart ár hjá Abramóvítsj sem tapaði snekkju í póker. 

Sarah Toolan, lögmaður Gruppo Editoriale L'Espresso, útgáfufélags blaðsins, sagði að fyrirtækið bæði Abramóvítsj innilega afsökunar á þeim óþægindum og hugarangri, sem greinin hefði valdið. Féllist blaðið á, að ásakanirnar væru ósannar og hefðu aldrei átt að birtast á prenti.

Í greininni sagði m.a. að snekkjan, sem Abramóvítsj átti að hafa tapað, væri hálfs milljarðs evra virði. Þá hefði spilafíkn kaupsýslumannsins valdið erfiðleikum í sambandi hans og Döshu Zhukóvu, sambýliskonu hans. Þá væri Abramóvítsj nú að spila póker á netinu.

Lögmaður Abramóvítsj sagði að skjólstæðingur sinn myndi gefa miskabæturnar til góðgerðarmála. Hann er 4. ríkasti Rússinn og 50. ríkasti maður heims en eignir hans nema 11,2 milljörðum dala að sögn tímaritsins Forbes. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is