Amanpour hættir á CNN

Christiane Amanpour. stækka

Christiane Amanpour. Reuters

Bandaríska sjónvarpsfréttakonan Christiane Amanpour, einn kunnasti fréttamaður sjónvarpsstöðvarinnar CNN, er að færa sig um set og hefur ráðið sig hjá ABC sjónvarpsstöðinni. Mun hún stýra fréttaþætinum This Week á sunnudagsmorgnum og starfa við aðra fréttaþætti.

Amanpour tekur við starfinu af George Stephanopoulos, fyrrum aðstoðarmanni Bills Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, en hann mun stýra morgunþætti ABC, Good Morning America.

Amanpour, sem er 52 ára, varð þekkt þegar hún flutti fréttir af Persaflóastríðinu árið 1991, sem hófst eftir að Írakar réðust inn í Kúveit. Hún hefur tekið viðtöl við marga þjóðarleiðtoga og áhrifamenn á undanförnum tveimur áratugum og sagt fréttir af átakasvæðum á borð við Írak, Afganistan, Pakistan, Sómalíu, Rúanda og Balkanskaganum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is