Birtir SMS frá Tiger

Joslyn James. stækka

Joslyn James.

Ein kvennanna, sem segist hafa átt vingott við bandaríska kylfinginn Tiger Woods á síðustu árum, birti í dag texta SMS skeyta sem hún segist hafa fengið frá ástmanni sínum.

Woods tilkynnti í vikunni að hann ætlaði að hefja keppni á ný í apríl eftir nokkurra mánaða hlé sem hann tók sér vegna hneykslismála sem blossuðu upp í nóvember. Textarnir, sem klámstjarnan fyrrverandi Joslyn James birti á heimasíðu sinni í dag benda til þess, að öldurnar séu ekki að lægja.

Nokkrir textanna virðast sýna hvernig Woods skipulagi ástarfundi með James. Í einum segist hann ætla að skilja eftir umslag á hóteli merkt ungfrú Daniels. „Þú verður í 305. Komdu þér fyrir og láttu mig vita þegar þú getur tekið á móti mér. Ég verð í herbergi 201."

James segist hafa átt í ástarsambandi við Woods í þrjú ár.   

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Funk-bræðingur á Kex Hostel

Einar Scheving.
05:30 Annað kvöld kl. 20.30 verða tónleikar á KEX Hostel þar sem Einar Scheving og félagar koma fram.   Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

finnur.is