Veröld/Fólk
| mbl
| 18.3.2010
| 16:34
Enn ein mismæli frá Biden
Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, bað fólk að blessa minningu móður Brian Cowen, forsætisráðherra Írlands. Þetta þótti ýmsum einkennilegt í ljósi þess að móðir ráðherrans er bráðlifandi.
Biden er þekktur fyrir fljótfærni og eftir hann liggur langur listi mismæla. Biden flutti ávarp í gær á St. Patrick's Day, þjóðhátíðardegi Íra. Hann notaði þar tækifærið til að mæra forsætisráðherra Írlands og minntist þar á móður hans.
„Móðir hans bjó á Long Island í um tíu ár. Guð blessi sál hennar. Og þó að hún - bíðum við - er mamma þín enn á lífi? Er það faðir þinn sem er dáinn? Guð blessi sál hennar. Ég vildi hafa þetta rétt,“ sagði Biden.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









