Veröld/Fólk
| mbl
| 18.3.2010
| 21:57
Fékk 30 þúsund dollara fyrir að tala
Michelle McGee, sem átti í 11 mánaða ástarsambandi við Jesse James, eiginmann Söndru Bullock, er sögð hafa fengið 30 þúsund dollara fyrir að segja frá sögu sinni.
Þetta er fullyrt á vefnum Technorati.com. McGee hefur sagt að hún hafi gert sér grein fyrir að James væri kvæntur leikonunni Söndru Bullock. Hún hafi litið svo á að samband hennar við við James væri aðgöngumiði að fræga fólkinu.
Bullock hefur ekki enn tjáð sig opinberlega um framhjáhald eiginmanns síns, en fullyrt er að hún hafi flutt úr húsinu þar sem hún hefur búið með James og þremur börnum hans. Bullock hefur ætlar ekki að vera viðstödd frumsýningu bíómyndarinnar The Blind Side í London. Leikkonan fékk nýverið óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









