Gefa keppninautum raflost

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Frönsk heimildarmynd sýnir að þeir sem taka þátt í raunveruleikaþáttum í sjónvarpi víla ekki fyrir sér að gefa þátttakendum raflost jafnvel þó fólk æpi vegna sársauka.


Í myndinni var fólki boðið að taka þátt í spurningaleik í sjónvarpsþætti sem m.a. gekk út á að refsa þátttakendum með því að gefa þeim raflost. Leikurinn kallaðist Game of Death. Um 82% þátttakenda var tilbúnir að gefa keppinautum sínum raflost. Þeir sem tóku þátt í leiknum vissu ekki að mótspilarar þeirra voru leikarar og að ekkert raflost var gefið.

Þeir sem gerðu myndina segjast með þessari tilraun vilja sýna fólki fram á hvað raunveruleika-sjónvarp geti verið varasamt. Í slíkum sjónvarpsþáttum sé hægt að fá fólk til að gera hluti sem gangi þvert á öll siðferðileg mörk.

Þessi tilraun er sambærileg við tilraun sem Yale-háskóli gerði fyrir tæplega hálfri öld. Þá voru 62% þátttakenda tilbúnir til að gefa raflost og héldu því áfram þrátt fyrir að heyra kvalaóp úr herberginu við hliðina á. Í frönsku tilrauninni voru yfir 80% tilbúnir til að gefa raflost.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is