Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 18.3.2010
| 5:30
Ingó leikur í Rétti og semur ný lög með Veðurguðunum
Ingó Veðurguð var í spjalli á Bylgjunni í gærmorgun. Þar kom fram að hann fer með hlutverk eiturlyfjasala í einum þætti í Rétti á Stöð 2.
Áhugavert verður að sjá hvernig drengurinn spjarar sig á leiklistarbrautinni. Einnig var flutt nýtt lag frá Ingó og Veðurguðunum, „Ef ég ætti konu“ sem er sprellandi smellur í þeirra anda.
Ingó gaf það líka upp að líklega væri von á tveimur lögum í viðbót frá Veðurguðunum á næstu mánuðum, þeir koma með vorið eins og lóan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









