Kryddpíu langar í annað barn

Kryddpíurnar: Victoria Beckham, Melanie Chisholm, Gerri Halliwell, Emma Bunton og Melanie Brown

Kryddpíurnar: Victoria Beckham, Melanie Chisholm, Gerri Halliwell, Emma Bunton og Melanie Brown Reuters

Fyrrum Kryddpían Emma Bunton er alveg til í að fjölga börnum heimsins en hún á tveggja ára gamlan son, Beau, með sambýlismanni sínum, Jade Jones.

Segist hún vonast til þess að draumur hennar um þungun rætist sem fyrst. Rétti tíminn til barneigna nálgist hjá þeim enda Beau orðin tveggja ára og að byrja á barnaheimili. Bunton, sem er 34 ára, segist elska móðurhlutverkið en viðurkennir að það hafi gert það að verkum að hún hafi ekki sinnt ferlinum sem skyldi.

„Ég held að áherslur mínar hafi breyst. Allt snýst um Beau. Hann er tveggja ára gamall svo hann er að verða aðeins hortugur og ég hef gaman af því," segir Kryddpían.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is