Verðmæt verk á uppboði

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Listaverk sem voru í eigu Daniel Carasso, sem lést í fyrra 103 ára að aldri, verða boðin upp í París á morgun. Meðal annars verða verk eftir Monet, Miro og Renoir boðin upp en talið er að verkin fari á um eina milljón evra.

Daniel Carasso var sonur Isaac Carasso, sem stofnaði mjólkurvörufyrirtækið Danone á Spáni. Isaac nefndi fyrirtækið eftir syni sínum Daniel en sonurinn tók síðar við fyrirtækinu og byggði upp stórveldi í mjólkuriðnaði. Enda fáir Evrópubúar og Bandaríkjamenn sem kannast ekki við Danone jógúrt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Funk-bræðingur á Kex Hostel

Einar Scheving.
05:30 Annað kvöld kl. 20.30 verða tónleikar á KEX Hostel þar sem Einar Scheving og félagar koma fram.   Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

finnur.is