Biður Söndru afsökunar

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Jesse James, eiginmaður bandarísku leikkonunnar Söndru Bullock, hefur sent frá sér opinbera afsökunarbeiðni. Fram hefur komið í bandarískum fjölmiðlum að James hafi átt ástarsambandi við fyrirsætu, sem vakið hefur athygli fyrir að vera mikið húðflúruð.

Í yfirlýsingunni, sem tímaritið People birti á vef sínum, segir James að stærstur hluti þess orðróms, sem sé á kreiki um hann, sé ósannur og úr lausu lofti gripinn.

„En það er engum öðrum að kenna um hvernig málum er komið nema mér. Ég á allt það skilið, sem beint er að mér vegna þess að ég hef sýnt slæma dómgreind," segir James. „Þetta hefur valdið konu minni og börnum sársauka og óþægindum og mér þykir afar leitt að hafa kallað þetta yfir þau. Ég vona að þau geti fyrirgefið mér."

Bullock og James hafa verið gift í nærri fimm ár. Bullock aflýsti í vikunni ferð til Lundúna sem hún ætlaði í til að kynna kvikmyndina The Blind Side en hún fékk nýlega Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni. Sagði í yfirlýsingu frá Warner Bros kvikmyndaverinu, að ferðinni hefði verið aflýst af ófyrirsjáanlegum persónulegum ástæðum.   

Fyrirsætan  Michelle „Bombshell“ McGee sagði við bandaríska slúðurblaðið In Touch, að hún hefði átt í 11 mánaða löngu ástarsambandi við James á meðan Bullock var við tökur á myndinni The Blind Side.  Fullyrti hún að þau James hefðu sofið saman fyrsta kvöldið sem þau kynntust og að James hefði sagt sér að þau Bullock væru að skilja.

Blaðið People sagði, að Bullock hefði flutt út úr húsi þeirra hjóna í Kalíforníu nokkrum dögum áður en greinin birtist í In Touch.

Bullock,  sem er 45 ára, og James, sem er fertugur, hittust árið 2004 þegar verið var að taka upp myndina  Monster Garage. Þau giftu sig ári síðar. Samband þeirra kom mögum á óvart því Bullock hefur orð á sér fyrir að berast ekki mikið á og vera varfræin og þroskuð. James, sem á ættir að rekja til útlagans Jesse James, sem uppi var á 19. öld, hefur hins vegar tvívegis áður verið giftur. Hann hefur átt í harðvígugri forræðisdeilu við fyrrverandi eiginkonu sína, klámmyndaleikkonuna Janine Lindemulder.  

Bullock og James eiga ekki börn saman en þrjú börn James af fyrri hjónaböndum hafa búið hjá þeim.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Funk-bræðingur á Kex Hostel

Einar Scheving.
05:30 Annað kvöld kl. 20.30 verða tónleikar á KEX Hostel þar sem Einar Scheving og félagar koma fram.   Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

finnur.is