Hvunndagshetja Alcoa Fjarðaáls
Starfsmannafélagið Sómi mun árlega veita verðlaunin starfsmanni sem sýnir af sér sérstaka hjálpsemi við náungann. Jeff veitti fyrsta styrknum viðtöku á nýliðinni árshátíð Fjarðaáls, samkvæmt fréttatilkynningu frá Alcoa Fjarðaáli.
Mary Ellen og Stephan Gibson, ellilífeyrisþegar sem voru í sumarfríi á Íslandi í júlí 2009. Þau urðu fyrir því óhappi að setja óvart bensín á dísilbílinn sem þau höfðu leigt. Þau áttuðu sig ekki á mistökunum fyrr en bíllinn stöðvaðist efst í Oddsskarði, á milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar. Þar eru aðstæður allar aðrar en hjónin eiga að venjast frá sínum heimaslóðum, vegurinn mjór og ekkert vegrið. Þeim var því mjög brugðið, segir í fréttatilkynningunni.
„Hjálpsöm kona með tvö börn í bílnum ók fram á bíl þeirra og bauð Mary Ellen far og fór með hana til Neskaupstaðar. Afi barnanna tók á móti þeim, útvegaði reipi og fór með Mary Ellen aftur upp í skarðið. Þá hafði Jeff Clemmensen, starfsmaður Alcoa Fjarðaáls ekið fram á Stephan og var búinn að festa reipi í bílinn og byrjaður að draga hann til Neskaupstaðar.
Hjónin lögðu í bréfi sínu til Tómasar Más Sigurðssonar, forstjóra Alcoa Fjarðaáls, áherslu á að Jeff hefði einnig veitt þeim andlega hjálp, talið í þau kjarkinn og sýnt einstakt hjartalag. Hann kom hjónunum á hótel og fór með þau í bíltúr um Norðfjörð. Daginn eftir var svo bíllinn kominn í lag og hjónin gátu haldið áfram ferð sinni um landið," segir í fréttatilkynningu.
Hvunndagshetjuverðlaun starfsmannafélagsins Sóma verða veitt á hverju ári á árshátíð Alcoa Fjarðaáls og hjónin munu leggja sjóðnum til 500 dali árlega. Miðað við gengið nú nemur þessi upphæð 63.000 krónum.
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









