Með kríunni til tunglsins

Krían flýgur fugla lengst. stækka

Krían flýgur fugla lengst. Páll Steingrímsson

Heimildarmynd Páls Steingrímssonar um kríuna, Krían: Þrisvar til tunglsins og til baka aftur, verður frumsýnd í Háskólabíói kl. 17:00 í dag, en heiti myndarinnar vísar í þá vegalengd sem krían flýgur á hverju ári þegar hún heldur frá norðurslóðum til suðurskautsins til að hafa þar vetursetu.

Páll elti kríuna meðal annars til suðurhvelsins um jólin í fyrra, aukinheldur sem hann kvikmyndaði kríu víða um land; á Reykjanesi, á Snæfellsnesi, Barðaströnd, Látrum, Melrakkasléttu og Þingvallavatni.

Páll segir að við komuna suðureftir hafi hann séð glöggt hvað það er mikilvægt fyrir kríuna að geta nýtt sér tvö sumur. "Hún þarf tuttugu klukkustunda birtu til að þrífast, hún þarf að vera á veiðislóð í björtu og er alltaf að," segir Páll, en hann byrjar myndina á ferðalaginu norður til Íslands og endar hana á fluginu suður á bóginn að nýju.

Páll segir að í sjálfu sér hafi fátt komið honum á óvart þegar hann var að vinna myndina, en það þó sem hann nefnir að hún sé að sækja í birtuna þar fyrir sunnan og svo hitt hvað krían er viðkvæm fyrir því þegar átuskilyrði breytast. "Síðustu þrjú ár í röð hefur verið katastrófa í afkomu unganna allstaðar hér við land nema helst fyrir Norðurlandi og á hluta Vestfjarða. Það er svo margt sem spilar saman og til dæmis skiptir máli hvað sílin eru stór þegar ungarnir eru að komast á legg, því ef þau eru of stór kemur unginn þeim ekki niður. Annað sem ég vissi ekki var það hvað krían er fim að veiða flugur á flugi og eins það að hún tæki maðka í túnum, það vissi ég ekki fyrr en ég fór að horfa á það."


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Funk-bræðingur á Kex Hostel

Einar Scheving.
05:30 Annað kvöld kl. 20.30 verða tónleikar á KEX Hostel þar sem Einar Scheving og félagar koma fram.   Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

finnur.is