Meiðyrði í ævisögu Walesa
Lech Walesa tók þátt í hátíðarhöldum í Berlín í vetur til að minnast þess að 20 ár voru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Reuters
Pólskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að meiðyrði sé að finna í nýrri ævisögu Lech Walesa, fyrrverandi forseta Póllands, og að útgefandinn sé bótaskyldur.
Ævisagan var skrifuð án samþykkis Walesa. Dómstóll í Krakow úrskurðaði í dag, að ásakanir í ævisögunni um að Walesa hefði verið uppljóstrari fyrir ríkisstjórn kommúnista, væru ærumeiðandi. Pólskur dómstóll hreinsaði Walesa af svipuðum ásökunum árið 2000.
Dómurinn dæmdi að fyrirtækið Arcana, sem gaf bókina út, verði að biðja dóttur Walesa afsökunar en hún kærði útgefandann fyrir meiðyrði. Þá var Arcana dæmt til að greiða 5000 zloty í miskabætur, jafnvirði 230 þúsund króna.
Walesa fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1983 en hann var þá leiðtogi samtakanna Samstöðu. Hann var forseti Póllands á árunum 1990-1995.
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









