Ópera eftir skáldsögunni Friðþægingu

Keira Knightley og James McAvoy í hlutverkum sínum í myndinni Friðþægingu. stækka

Keira Knightley og James McAvoy í hlutverkum sínum í myndinni Friðþægingu.

Enski rithöfundurinn Ian McEan vinnur nú að gerð óperu eftir skáldsögu sinni Atonement, eða Friðþægingu eins og bókin heitir í íslenskri þýðingu. Kvikmynd var gerð eftir bókinni fyrir nokkrum árum með Keiru Knightley og James McAvoy í aðalhlutverkum.

McEwan segist í viðtali við breska blaðið The Times vera að vinna að óperunni í samstarfi við tónskáldið Michael Berkeley og ljóðskáldið Craig Raine. Segist McEwen vilja að þetta verði mikilfengleg ópera. „Það er að minnsta kosti ljóst, að þetta verður engin kammertónlist," segir hann.

Friðþæging fjallar um atburði á ensku sveitasetri á millistríðsárunum sem hafa áhrif á líf ungs fólks. Bókin kom fyrst út árið 2001 og var tilnefnd til bresku Booker verðlaunanna. Kvikmyndin, sem var frumsýnd árið 2007, var tilnefnd til 7 Óskarsverðlauna en vann ein, fyrir tónlist.  

The Times segir, að óperuhús á Englandi, í Þýskalandi og Bandaríkjunum eigi nú í viðræðum um að setja upp óperuna, hugsanlega árið 2013. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni, BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

Fjölskylda Houston miður sín

Whitney Houston árið 1998.
20:35 Fjölskylda söngkonunnar Whitney Houston segist miður sín yfir þeim harmleik sem fráfall hennar sé. Houston fannst látin í baðkari á hótelherbergi í gær. Hún var 48 ára. Meira »

Dóttir Houston á sjúkrahús

Whitney Houston ásamt dóttur sinni Bobbi Kristina Brown.
21:02 Dóttir söngkonunnar Whitney Houston var flutt á sjúkrahús í dag. Ekki er ljóst hvers vegna Bobbi Kristina Brown þurfti á læknisaðstoð að halda. Meira »

Reisir styttu af forsetafrúnni

Carla Bruni-Sarkozy.
19:59 Frakkar eru ekki sérstaklega spenntir fyrir því að tveggja metra há stytta verði reist af forsetafrúnni, Cörlu Bruni. Bruni féllst á að sitja fyrir hjá myndhöggvaranum en segist ekki hafa gert sér grein fyrir að nafn hennar yrði tengt styttunni. Meira »

finnur.is